Björguðu manni í sjálfheldu

Björgunarsveitarmenn að störfum. Myndin er úr safni og tengist fréttinni …
Björgunarsveitarmenn að störfum. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarsveitir á Norðurlandi voru kallaðar út um klukkan fimm í dag vegna manns sem var í sjálfheldu í Krossöxl ofan Ljósavatns. Fjallið er mjög bratt, kjarrivaxið og erfitt yfirferðar, ekki síst í myrkri, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg.

Manningum tókst að gefa björgunarsveitarmönnum ljósmerki sem auðeldaði leitina til muna en hann hafði lagt á fjallið frá áningarstað við Ljósavatn.

Maðurinn var ekki búinn til fjallgöngu og var orðið kalt þegar fjallabjörgunarmenn komu að honum í rúmlega 500 metra hæð. Hann var hins vegar ómeiddur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert