Innanlandsflug fellur niður

Það verður ekkert flogið um flugvöllinn fram yfir hádegi í …
Það verður ekkert flogið um flugvöllinn fram yfir hádegi í það minnsta. mbl.is/Árni Sæberg

Vegna hinnar kröppu óveðurslægðar sem fer hratt hjá skammt vestan við landið upp úr hádegi er búið að aflýsa öllu flug til og frá Reykjavíkurflugvelli.

Ekkert verður flogið til og frá flugvellinum í það minnsta fram yfir hádegið. Fram kemur á heimasíðu Flugfélags Íslands að næst verði upplýsingar gefnar klukkan 14:15 og því ekki loku fyrir það skotið að eitthvað verði flogið seinni hluta dags.

Sama má segja um hina flugvellina innanlands; á Ísafirði, Egilsstöðum og Akureyri. Ekkert er flogið fyrir hádegi og staðan verður metin upp á nýtt kl. 14:15.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert