Ánægjulegt símtal í vændum

Lottó.
Lottó.

Einn var með allar lottótölur kvöldsins réttar og er það áskrifandi sem á þann miða þannig að hann fær ánægjulegt símtal fljótlega. Samkvæmt upplýsingum frá Íslenskri getspá mun hann eiga von á rúmlega 24,8 milljónum inn á reikninginn sinn innan tíðar.   

Tveir skiptu með sér tvöföldum bónusvinningi og hlýtur hvor um sig rúmlega 379 þúsund krónur, annar miðinn var keyptur í Jolla í Hafnarfirði en hinn í N1 á Húsavík.

Lottótölur kvöldsins eru: 28, 32, 34, 37 og 40. Bónustalan er 14.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert