Eldur kom upp í Centric Guesthouse í Lækjargötu núna á níunda tímanum í kvöld. Tilkynnt var um eld og reyk út um glugga gististaðarins og var allt lið slökkviliðsins á tveimur stöðum sent á staðinn. Í ljós kom að eldur hafði komið upp og rauk úr þvottahúsi.
Uppfært 22.55
Samkvæmt slökkviliði er búið að ljúka störfum á vettvangi.