Undirskriftasöfnun gegn áfengisfrumvarpi

Áfengisverslun ríkisins.
Áfengisverslun ríkisins. mbl.is/Þórður

Undirskriftasöfnun er hafin gegn frumvarpi um að leyfa frjálsa sölu áfengis og áfengisauglýsingar á vefnum www.allraheill.is. „Með átakinu er ætlunin að vernda hag barna og ungmenna gegn ágangi áfengisiðnaðarins. Yfirskriftin er Allraheill, hugsum um heill okkar allra.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bindindissamtökunum IOGT á Íslandi. 

„Spurningin um að leyfa sölu áfengis í matvöruverslunum og áfengisauglýsingar snýst um meira en frelsi í viðskiptum. Rannsóknir sýna að aukið aðgengi að áfengi og áfengisauglýsingar stuðla að aukinni neyslu sem bitnar mest á börnum og unglingum. Þetta snýst því líka um frelsi þeirra til að geta farið í matvöruverslun án þess að sjá þar áfengi,“ segir jafnframt í tilkynningunni. 

Þar er einnig vísað í 3. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þar segir: „Ber okkur að setja hagsmuni barna í forgang þegar taka þarf ákvörðun sem hefur áhrif á börn með einum eða öðrum hætti. Hagsmunir barna af því að njóta verndar gegn skaðlegum áhrifum áfengis eiga því að vega þyngra en hugsanlegir hagsmunir fullorðinna af því að geta keypt áfengi í matvöruverslunum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert