Glatað ár kostar sjö milljónir

Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS.
Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS.

„Heilsufarsskaði Íslendinga nemur 420 milljörðum á ári sé miðað við verga landsframleiðslu á mann og „glötuð góð æviár“ eins og þau eru mæld af Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. Heilsufarsskaðinn samsvarar því 19% af vergri landsframleiðslu Íslendinga. Fyrir hvert prósentustig sem tækist að minnka heilsufarsskaðann um áynnust þannig 4,2 milljarðar króna.“ Þetta kemur fram í leiðara Guðmundar Löveframkvæmdastjóra SÍBS, sem ber yfirskriftina: Hvar eru forvarnirnar? í nýjasta blaði SÍBS.  

Guðmundur segir að því seinna sem gripið er inn í sjúkdómsferli því dýrari verði íhlutunin. Hvert mannsár sem glatast vegna ótímabærs dauða, örorku eða skerðingar af völdum lífsstílstengdra sjúkdóma kostar því samfélagið um sjö milljónir króna.

Hann spyr jafnframt hvar forvarnir í heilbrigðismálum séu og nefnir sem dæmi að hægt væri að niðurgreiða 16 vikna ítarlegt námskeið um heilsufar og lífsstíl fyrir 100 þúsund Íslendinga á ári. 

„Það blasir þó við að meðan útgjöld til beinna forvarna eru aðeins um 1% af heildarútgjöldum til heilbrigðismála er einhvers staðar pottur brotinn,“ segir Guðmundur jafnframt. 

Auk Guðmundar fjalla Inga Dóra Sigfúsdóttir prófessor, Björn Geir Leifsson læknir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá landlækni, og fleiri, um forvarnir frá ólíkum sjónarhornum í blaðinu. 

Því seinna sem gripið er inn í sjúkdómsferli því dýrari …
Því seinna sem gripið er inn í sjúkdómsferli því dýrari verður íhlutunin. mbl.is/Sigurgeir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert