Samkvæmt veðurspá kl. 18 í dag má búast við að færð spillist mjög víða á morgun og ekkert ferðaveður verði á landinu. Búast má við lokunum á mörgum vegum.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að búast megi við lokunum á eftirtöldum vegum:
09.00-18.00 Eyjaföll og Hellisheiði.
11.00-18.00 Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði.
12.00-17.00 Reykjanesbraut.
12.00-18.00 Kjalarnes og Hafnarfjall.
15.00-21.00 Holtavörðuheiði og Brattabrekka.
16.00 og fram á kvöld Mývatns- og Möðrudalsöræfi, Fjarðarheiði, Fagridalur og Oddsskarð.
Ábendingar frá veðurfræðingi kl. 16.40
„Í fyrramálið er reiknað með snjókomu á Hellisheiði og Mosfellsheiði. Kóf og versnandi skyggni á milli kl. 8 og 9. Eins á Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði. Á Kjalarnesi gæti skafrenningur orðið til vandkvæða fyrir hádegi. Hvessir austur undir Eyjafjöllum og í Mýrdal um og upp úr kl. 11 og fljótlega hviður þar allt að 40-50 m/s í A-áttinni. Útlit er fyrir að versni á Reykjanesbraut upp úr kl. 13 og þar verði vindur um 25 m/s þvert á, með hviðum allt að 35-40 m/s samfara krapa og vatnsaga. Á Holtavöruheiði og Bröttubrekku gerir síðan hríðarveður um miðjan dag.“