Ökumaður í vímu olli umferðaróhappi

mbl.is/Styrmir Kári

Lögreglunni barst tilkynning skömmu fyrir miðnætti um umferðaróhapp á Reykjanesbraut þar sem ung kona, sem olli óhappinu, ók af vettvangi. Hún var handtekin skömmu síðar og er grunuð um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna.

Hún gistir fangageymslur lögreglunnar vegna rannsóknar málsins.

Um eitt í nótt var síðan ung kona stöðvuð í Suðurhlíð grunuð um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert