Tveir grunaðir um líkamsárásina

mbl.is/Hjörtur

Tveir karlmenn eru grunaðir um grófa líkamsárás í Hafnarstræti um þarsíðustu helgi þar sem ráðist var á tvo karlmenn og konu. Konan og annar mannanna sluppu með skrámur en þriðji maðurinn hlaut heilablæðingu auk þess sem höfuðkúpa hans brákaðist. Talið er að hann muni ná sér að fullu en það mun taka tíma samkvæmt frétt Ríkisútvarpsins.

Frétt mbl.is: „Ég hef sjaldan upplifað verri daga“

Haft er eftir lögreglu að rannsókn málsins miði vel. Skýrslur hafi verið teknar í dag af vitnum og þeim sem fyrir árásinni urðu. Tveir karlmenn séu grunaðir um verknaðinn en enginn hafi verið handtekinn. Þá er haft eftir lögreglu að skipt hafi sköpum að árásin hafi verið gerð þar sem öryggismyndavélar séu til staðar en án þeirra væri ekki á miklu að byggja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert