332 íbúðir rísi á Gelgjutanga

Það blés hressilega þegar samningar um Vogabyggð voru undirritaðir.
Það blés hressilega þegar samningar um Vogabyggð voru undirritaðir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Reykjavíkurborg og fasteignafélagið Festir undirrituðu í dag samning um uppbyggingu 332 íbúða á Gelgjutanga. Í síðustu viku samþykkti borgarráð þrjá samninga sem tengjast fyrirhugaðri uppbyggingu á þessu svæði í Vogabyggð.

Í samningunum er Vogabyggð 1 skipt upp í fimm lóðir samkvæmt deiliskipulagstillögu sem nú er í vinnslu. Samningarnir þrír kveða á um uppbyggingu á svæði 1 á Gelgjutanga og eiga á því svæði að rísa fimm fjölbýlishús.

Samningurinn sem undirritaður var í dag kveður á um að Reykjavíkurborg fái tvær lóðir til ráðstöfunar en Festir ehf. þrjár lóðir til uppbyggingar. Reykjavíkurborg framselur síðan aðra lóðina til Festis ehf. fyrir tæpar 326 m.kr. Þá er samið um að Festir ehf. taki þátt í listskreytingum í Vogabyggð.

Tölvuteikning af mögulegu útliti Vogabyggðar.
Tölvuteikning af mögulegu útliti Vogabyggðar.

Loks kveður samningurinn um nauðsynlegan flutning á skólpdælustöð á Gelgjutanga.

Þriðji samningurinn er á milli Faxaflóahafna sf. og Reykjavíkurborgar um kaup borgarinnar á meginhluta Gelgjutanga sem nú er skilgreindur sem hafnarsvæði. Kaupverðið er 40 m.kr.

Áætlanir gera ráð fyrir 1.100 – 1.300 íbúðum í allri Vogabyggð.

Vinna við deiliskipulagsgerð fyrir Vogabyggð 1 er á lokastigi og ganga áætlanir út á það að uppbygging hefjist á svæðinu fyrri hluta árs 2018.

Róbert Aron Róbertsson, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Heimir Sigurðsson, …
Róbert Aron Róbertsson, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Heimir Sigurðsson, stjórnarformaður í Festi ehf., undirrita samninginn. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert