Dagsektir lagðar á bónda

Matvælastofnun hefur lagt dagsektir á bónda vegna aðbúnaðar sauðfjárs og …
Matvælastofnun hefur lagt dagsektir á bónda vegna aðbúnaðar sauðfjárs og nautgripa. mbl.is/Árni Torfason

Matvælastofnun hefur lagt dagsektir á bónda á Suðurlandi vegna aðbúnaðar nautgripa og sauðfjár á bænum. Um endurtekið brot er að ræða án þess að kröfur stofnunarinnar um úrbætur hafi verið virtar.

Segir í tilkynningu frá Matvælastofnun að krafist hafi verið úrbóta á búinu í lok síðasta árs vegna útigangs nautgripa og aðbúnaðar í fjárhúsum og fjósi. Við eftirlit í janúar og mars hafði úrbótum ekki verið sinnt nema að hluta. Leggjast nú dagsektir að upphæð 15 þúsund krónur á umráðamann dýranna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert