Eldur í svölum við Langholtsveg

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um níuleytið í morgun eftir að eldur kom upp á svölum húss við Langholtsveg.

Betur fór þó en á horfðist því húsráðandi hafði sjálfur náð að slökkva eldinn með handslökkvitæki þegar að slökkviliðsmenn komu á vettvang.  Einhverjar skemmdir urðu á klæðningu, en húsið slapp við skemmdir að öðru leyti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert