Guðlaugur fundar með Lavrov

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ávarpar alþjóðlega norðurslóðaráðstefnu í Arkhangelsk í Rússlandi á morgun og mun, í tengslum við ráðstefnuna, eiga fund með Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, ásamt utanríkisráðherrum Noregs og Danmerkur.

Á fundi ráðherranna verða samskiptin við Rússland, samvinna á norðurslóðum, öryggismál og helstu álitamál á alþjóðavettvangi meðal annars til umfjöllunar, segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Þá munu forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og utanríkisráðherra funda með Vladimir Pútín Rússlandsforseta á fimmtudag þar sem tvíhliða samskipti ríkjanna og ýmis utanríkismál verða á dagskrá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert