Viðvörunarskilti við Draugahlíðarbrekku endurnýjað

Viðvörunarskilti sem sýnir fjölda látinna í umferðinni stendur suðvestan við …
Viðvörunarskilti sem sýnir fjölda látinna í umferðinni stendur suðvestan við Suðurlandsveg rétt ofan við Draugahlíðarbrekku.

Viðvörunarskilti sem sýnir fjölda látinna í umferðinni og stendur suðvestan við Suðurlandsveg rétt ofan við Draugahlíðarbrekku hefur nú verið gert upp og endurnýjað en 17 ár eru frá því það var fyrst sett upp.

Tryggingafélögin TM, VÍS og Vörður ásamt Samgöngustofu sameinuðust um kostun endurbótanna og framkvæmd verkefnisins. Skiltið var upphaflega sett upp árið 2000 en auk þess að greina frá fjölda látinna eru ofan á því tvær bifreiðar sem hafa orðið fyrir tjóni í umferðarslysum. Það var samróma álit þeirra sem að verkinu komu að mikilvægt væri að halda þessu skilti við til að minna ökumenn á ábyrgð þeirra með vísan í fjölda þeirra sem látist hafa í umferðinni á árinu, segir í tilkynningu.

Í upphafi hvers árs er talan núll sett á skiltið í þeirri von að hún fái að standa óbreytt út árið. Sú hefur reyndar aldrei verið raunin en hæst hefur fjöldi látinna farið í þrjátíu og tvo og lægst í fjóra frá því að skiltið var sett upp.

Í fréttatilkynningu er haft eftir Óla H. Þórðarsyni, sem var framkvæmdastjóri Umferðarráðs, að hann hafi kynnt hugmyndina að skiltinu fyrir Sambandi íslenskra tryggingafélaga og aðildarfélög þess á sínum tíma og var ákveðið að sameinast um gerð þess.

Skiltið vísar í báðar akstursstefnur og er á því kross og inni í honum er tala látinna á hverjum tíma skráð með áberandi hætti. Talan er uppfærð strax eftir að banaslys hefur orðið og hafa starfsmenn SB-skiltagerðar í Þorlákshöfn annast það verkefni, segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert