Flestar hugmyndir tengdar Grafarvogi

Flestar hugmyndir sem bárust tengdust Grafarvogi.
Flestar hugmyndir sem bárust tengdust Grafarvogi. Sigurður Bogi Sævarsson

Samtals bárust 1.080 hugmyndir í hugmyndasöfnunina Hverfið mitt sem Reykjavíkurborg stendur fyrir. Síðast bárust 915 hugmyndir og þar áður voru þær 597 talsins. Flestar hugmyndirnar bárust er varða Grafarvog, eða 180 talsins. Næst þar á eftir var Breiðholtið með 160 hugmyndir og Laugardalur með 124 hugmyndir.

Mögulegt verður til 8. apríl að rökstyðja, ræða og gefa hugmyndum vægi á vefnum hverfidmitt.is. Hugmyndir sem teknar verða í áframhaldandi vinnslu verða að fá fylgi 10 íbúa, en íbúar greiða hugmynd leið með því að smella á hjarta við þær hugmyndir sem þeim líkar við. 

Fagteymi umhverfis- og skipulagssviðs er þegar byrjað að vinna úr hugmyndum sem bárust og í júní taka hverfisráð borgarinnar ákvörðun um 25 hugmyndir fyrir borgarhlutana tíu.  Frumhönnun verður síðan unnin fyrir þessar 250 hugmyndir þannig að þegar kemur að kosningu meðal íbúa geti þeir betur gert upp hug sinn. Kosningar verða 17. – 31. október.

Fjöldi hugmynda eftir borgarhlutum:

  • Grafarvogur 180
  • Breiðholt 160
  • Laugardalur 124
  • Háaleiti og Bústaðir 143
  • Miðborg 111
  • Hlíðar 101
  • Árbær 87
  • Vesturbær 78
  • Grafarholt og Úlfarsárdalur 61
  • Kjalarnes 35
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert