Opna ungbarnadeildir á leikskólum

Koma á upp ungbarnadeildum hjá leikskólum í Reykjavík.
Koma á upp ungbarnadeildum hjá leikskólum í Reykjavík. mbl.is/Ómar Óskarsson

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun tillögur frá stýrihópnum Brúum bilið um að setja á fót ungbarnadeildir við fjóra leikskóla borgarinnar næsta haust. Verða þær sérhæfðar, með aðstöðu, leikrými og búnaði sem hæfir þroska og tryggir öryggi barna á öðru og þriðja aldursári. Hægt verður að innrita börn fædd á árinu 2016 (á tímabilinu janúar-apríl) á ungbarnadeildir auk forgangsbarna frá 12 mánaða aldri. Stefnt er að því að slíkar ungbarnadeildir verði starfræktar í öllum hverfum borgarinnar.

Í fyrsta áfanga verða settar á fót sjö ungbarnadeildir við leikskólana Miðborg, Holt (Breiðholti), Sunnuás (Laugardal) og Blásali (Árbæjarhverfi) og taka þær til starfa í ágúst og september 2017. Í Miðborg er gert ráð fyrir tveimur ungbarnadeildum fyrir um 25 börn, í Holti er gert ráð fyrir 15 barna deild, í Sunnuási verða tvær ungbarnadeildir fyrir 24 börn og í Blásölum tvær deildir fyrir allt að 25 börn.  Alls verður pláss fyrir um 90 börn á þessum sjö ungbarnadeildum. 

Heildarkostnaður vegna búnaðar og endurbóta á lóðum og húsnæði fyrir þessar sjö ungbarnadeildir er áætlaður um 22,5 milljónir á árinu 2017. 

Einnig er stefnt að því að reisa nýjan ungbarnaleikskóla á Kirkjusandi sem mun starfa með leikskólanum Hofi. Á næstu mánuðum verður  tekið saman yfirlit um hvernig fjölga megi plássum fyrir ung börn á almennum leikskóladeildum borgarinnar frá og með haustinu og jafnframt verður plássum fyrir ung börn fjölgað í sjálfstætt starfandi leikskólum í borginni um allt að 200, í samræmi við umsóknir þar um. Áætlaður heildarkostnaður vegna þessa á árinu 2017 er 93,5 milljónir.

Síðasti liðurinn í aðgerðaráætlun þessa árs felur í sér að niðurgreiðslur vegna barna hjá dagforeldrum verða hækkaðar um 10% til viðbótar við 2,5% hækkun sem tók gildi um áramótin. Þá verður settur á fót starfshópur með þátttöku félaga dagforeldra sem mun móta tillögur um leiðir til að auka gæði og öryggi í þjónustu dagforeldra.  Þá stendur til að auglýsa eftir nýjum dagforeldrum til að mæta aukinni eftirspurn eftir þjónustu þeirra.  Áætlaður viðbótarkostnaður vegna þessa er um 47,3 milljónir. 

Heildarkostnaðar vegna fyrrnefndra aðgerða  nemur alls 163,4 milljónir á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert