Sjór súrnar hraðar norðan við Ísland

Byrjað var að rannsaka sjóinn fyrir norðan og sunnan Ísland …
Byrjað var að rannsaka sjóinn fyrir norðan og sunnan Ísland 1983. Þær rannsóknir sýna að sýrustig yfirborðssjávar norðan við Ísland lækki 50% hraðar en sunnar í Atlantshafi. Myndin er úr safni og tengist ekki efni fréttarinnar. mbl.is/RAX

Súrnun hafsins á okkar slóðum og í Norðurhöfum hefur náð lengra og verður meiri en meðaltal súrnunar mælist í heimshöfum. Þetta kom fram í máli Jóns Ólafssonar, prófessors emeritus við Háskóla Íslands, á ársfundi Veðurstofunnar á fimmtudag. Jón fjallaði í erindi sínu um súrnun sjávar og sagði hann breytingarnar ná allt frá yfirborði og niður á hafsbotn.

„Andstætt því sem gerist í andrúmsloftinu, þar sem koltvísíringurinn dreifist hratt og jafnast út á einu til tveimur árum, þá gerist slíkt ekki í hafinu,“ sagði Jón og kvað hita, seltudreifingu og strauma hafa áhrif þar á.

Áætluð þróun á meðalsýrustig sjávar sýni að áætlun Parísarsamkomulagsins dugi varla til. „Höfin taka við um fjórðungi losunar gróðurhúsalofttegunda, en það kostar og stöðug upptaka koltvísýrings breytir sýrustigi sjávar.“

Aukin afföll og minni nýliðun í þorski

Slíkt hafi áhrif á fjölda tegunda og þannig sýni rannsóknir á þorsk úr Barentshafi og Eystrasalti fram á aukin afföll þorsklifra, minni nýliðun og auknar líkur á lélegum árgöngum. „Súrnun hefur víðtæk áhrif,“ sagði Jón. „Við erum ekki að tala um breytingar og áhrif á einstakar tegundir heldur breytingar og áhrif á vistkerfið.“

Höfin taka við um fjórðungi losunar gróðurhúsalofttegunda, en það kostar …
Höfin taka við um fjórðungi losunar gróðurhúsalofttegunda, en það kostar og stöðug upptaka koltvísýrings breytir sýrustigi sjávar. Þetta kom fram í erindi Jóns Ólafssonar á ársfundi Veðurstofunnar. mbl.is/Golli

Jón segir að byrjað hafi verið að rannsaka sjóinn fyrir norðan og sunnan Ísland árið 1983. Þær rannsóknir sýni að sýrustig yfirborðssjávar norðan við Ísland lækki 50% hraðar en sunnar í Atlantshafi. „Það er engum blöðum um það að fletta að þetta er að gerast,“ sagði hann og bætti við að í hlýsjónum fyrir vestan land lækki sýrustigið hægar og þar hafi hlýnunin líka orðið meiri.

Ostrustofninn hrundi 

Sýrustig fer einnig lækkandi í djúpsævinu í kringum Ísland, en lækkandi sýrustigi fylgi aukin súrnun sjávar. „Við erum alltaf að fara í þá átt að sýrustigið lækkar. Mettunargildi argónít-kalks er sömuleiðis að breytast, það er lágt og breytist hratt á landgrunninu norðan Íslands og breytingar ná frá yfirborði til botns.“

Hann segir lágt kalkmettunarstig og lítið svigrúm til lækkunar vera sameiginlegt einkenni sjávar við Íslandshaf og sjávar í ostrueldisstöðvum á Kyrrahafsströndum Bandaríkjanna, en þar hrundi stofninn úr 500 milljónum ostra í 100 milljónir við þessar breytingar.

Jón bætir við að  vistfræðilegar afleiðingar þessa fyrir hafið við Ísland séu lítt þekktar, en dæmin sýni þó að þetta sé ekkert að byrja . „Þarna hafa breytingar verið í gangi sl. 200 ár, en þó mestar sl. 50-60 ár,“ sagði hann og kvað mikið ráðast af því hvað verði gert til að draga úr losun núna. „Það skiptir öllu hvort það verði viðsnúningur á þessari breytingu, upp á það hvort að þetta fari að ganga til baka.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert