Hafði komið sér fyrir í yfirgefnu húsi

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Töluverður viðbúnaður var vegna tilkynningar um innbrot í hús við Keilugranda í Reykjavík á áttunda tímanum í kvöld. Var mikið lögreglulið sent á staðinn og þar á meðal sérsveit. 

Þegar á staðinn kom og ráðist hafði verið inn í húsið sem er yfirgefið kom í ljós að karlmaður hafði komið sér fyrir í húsinu. Var hann handtekinn grunaður um húsbrot. Fréttavefur Ríkisútvarpsins greinir frá þessu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert