Engan sakaði í Grindavík

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Aðgerðum sérsveitar ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á Suðurnesjum vegna manns í annarlegu ástandi í Grindavík lauk um klukkan eitt í nótt. Málið leystist farsællega, engan sakaði en maðurinn var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins.

Tekin verður af honum skýrsla í dag.

Aðgerðir höfðu staðið yfir frá klukkan 19 í gærkvöldi og tók fjölmennt lið lögreglu þátt í þeim, enda höfðu íbúar safnast saman þar sem lögreglan athafnaði sig. Sem fyrr segir fór allt vel að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert