Alvarlegt umferðarslys varð á Eyjafjarðarbraut vestari skammt sunnan við Hrafnagil rétt fyrir klukkan 16 í dag. Sagt er frá þessu á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Kemur þar fram að strax hafi verið ljóst að um alvarlegt slys væri að ræða og fóru viðbragsaðilar á staðinn á hæsta forgangi.
Einn aðili var fluttur strax á sjúkrahúsið á Akureyri og er ekki hægt að gefa upplýsingar um ástand hans að svo stöddu.
Eyjafjarðarbraut vestari var lokað við gatnamótin við Miðbraut og er umferð beint um hana yfir á Eyjafjarðarbraut eystri. Einnig er veginum lokað sunnan við slysstað og er fólki bent á að fara um Eyjafjarðarbraut eystri. Óvíst er hversu lengi veginum verður lokað.