Fíllinn í Costco sagður seldur

Fíllinn er seldur.
Fíllinn er seldur. mbl.is/Auður

Búið er að selja stóru fílsstyttuna í Costco en styttan kostaði 499.999 krónur. Árvökull neytandi greindi frá þessu í Costco-hópnum á Facebook.

Ekki kemur fram hver keypti fílinn en fyrir stuttu keypti Gunn­ar Páll Tryggva­son, fjár­málaráðgjafi og meðeig­andi hjá Icora Partners, gír­aff­a í sömu verslun. Gíraffinn var töluvert ódýrari en hann kostaði 300.000 krónur.

Skjáskot/Facebook

Starfsmenn Costco hafa hengt miða á fílinn þar sem stendur einfaldlega „sold“. Fíllinn bíður eftir því að eigandi hans sæki hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert