Lögreglan fer fram á gæsluvarðhald

Sakborningur leiddur fyrir dómara.
Sakborningur leiddur fyrir dómara. mbl.is/Ófeigur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun í dag leggja fram kröfu um gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna yfir fimm körlum og einni konu, sem grunuð eru um aðild að aðför að manni sem leiddi til dauða hans.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni en fólkið  var handtekið í gærkvöld eftir að tilkynning barst lögreglu um alvarlega líkamsárás í Mosfellsdal. Fólkið verður leitt fyrir dómara eitt af öðru í Héraðsdómi Reykjavíkur nú síðdegis.

Sá sem fyrir árásinni varð, karlmaður um fertugt, var fluttur á Landspítalann í Fossvogi þar sem hann var úrskurðaður látinn. Rannsóknin málsins, sem er mjög umfangsmikil, er í algjörum forgangi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert