Tveir gistu í klefa á Akureyri

Bíladagar eru á Akureyri um helgina.
Bíladagar eru á Akureyri um helgina. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Tveir þurftu að gista í fangaklefa á lögreglustöðinni á Akureyri í nótt. 14 voru teknir fyrir of hraðan akstur og þrír fyrir ölvunarakstur og tvö fíkniefnamál komu upp. Alls bárust lögreglunni 58 bókanir vegna annarra afskipta. Um helgina eru Bíladagar á Akureyri.  

„Þetta hefur gengið ágætlega,“ segir Þórarinn Jóhannesson varðstjóri lögreglunnar á Akureyri. Hann segir að nokkrar kvartanir hafi borist vegna ökumanna sem hafi verið að spyrna á stöðum sem ekki er leyft. Þórarinn þetta hafa annars gengið mjög vel.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert