Rannsókn varpar nýju ljósi á loftlagsbreytingar

Eldgosið í Holuhrauni hófst síðsumars 2014 og var stærsta eldgos …
Eldgosið í Holuhrauni hófst síðsumars 2014 og var stærsta eldgos hér á landi frá Skaftáreldum árið 1783-1784. Gosinu fylgdi gríðarlegt magn brennisteinsmóðuagna sem dreifðust yfir Norður-Atlantshafið. Vísindamenn gátu því fylgst afar náið með samspili agnanna og myndunar skýja á gossvæðinu. Rax / Ragnar Axelsson

Ný rannsókn á eldgosinu í Holuhrauni 2014-2015 varpar nýju ljósi á áhrif brennisteinsmengunar frá eldgosum á andrúmsloftið. Niðurstöður rannsóknarinnar gætu gert mönnum kleift að spá betur fyrir um loftslagsbreytingar á næstu áratugum. Meðal aðalhöfunda rannsóknarinnar er Þorvaldur Þórðarson, prófessor við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands. Sagt er frá rannsókninni í vísindatímaritinu Nature í dag.

Samspil skýja og móðuagna

Rannsóknin snýst um svokallaðar móðuagnir (e. aerosols) í andrúmsloftinu og samspil þeirra við myndun skýja á himninum en agnirnar gegna mikilvægu hlutverki við að ákvarða eiginleika skýja. Vísindamönnum hefur lengi verið kunnugt um þetta sampil móðuagna og skýja og þekkt er að agnirnar gegna mikilvægu hlutverki í loftslagi en hins vegar hefur ekki legið nákvæmlega fyrir hversu mikil áhrif agnanna eru á skýjafar.

Eldgosið í Holuhrauni hófst síðsumars 2014 og var stærsta eldgos hér á landi frá Skaftáreldum árið 1783-1784. Gosinu fylgdi gríðarlegt magn brennisteinsmóðuagna sem dreifðust yfir Norður-Atlantshafið. Vísindamenn gátu því fylgst afar náið með samspili agnanna og myndunar skýja á gossvæðinu.

Í ljós kom að brennisteinsmóðuagnirnar stuðluðu að því að vatnsdropar …
Í ljós kom að brennisteinsmóðuagnirnar stuðluðu að því að vatnsdropar í skýjunum minnkuðu en það leiddi til þess að skýin urðu bjartari. Við þetta varpaðist meira af sólarljósi aftur út í geim sem aftur dregur úr hita í andrúmsloftinu. Mynd/mbl

Í ljós kom að brennisteinsmóðuagnirnar stuðluðu að því að vatnsdropar í skýjunum minnkuðu en það leiddi til þess að skýin urðu bjartari. Við þetta varpaðist meira af sólarljósi aftur út í geim sem aftur dregur úr hita í andrúmsloftinu. Rannsóknirnar leiddu hins vegar til þeirrar óvæntu niðurstöðu að móðuagnirnar frá gosinu höfðu annars lítil greinanleg áhrif á eiginleika skýja. Þetta telja vísindamenn benda til þess að skýjakerfi hafi nokkurs konar innbyggða „stuðpúða“ til að takast á við breytingar á magni móðuagna í andrúmsloftinu.

Niðurstöður gætu auðveldað loftlagsbreytingaspár

Vísindamenn telja að með því að yfirfæra þessar niðurstöður á útstreymi brennisteinsagna frá iðnaði megi draga enn frekar úr óvissuþáttum í spálíkönum vegna loftslagsbreytinga. Rannsóknin varpi þannig nýju ljósi á þátt móðuagna í loftslagsbreytingum. Niðurstöðurnar hafi í för með sér að útiloka megi ákveðin loftslagslíkön, sem notuð hafa verið, og um leið spá betur fyrir um loftslagsbreytingar en áður.

Þorvaldur Þórðarson er prófessor við Jarðvísindadeild Háskóla Ísland og einn …
Þorvaldur Þórðarson er prófessor við Jarðvísindadeild Háskóla Ísland og einn aðalhöfunda rannsóknarinnar. Hann segir niðurstöður rannsóknarinnar afar þýðingamiklar. mbl.is


Að rannsókninni stendur fjöldi vísindamanna frá háskólum og rannsóknastofnunum í Evrópulöndum og Bandaríkjunum en hópur við Exeter-háskóla í Bretlandi stjórnaði verkefninu. Sagt er frá rannsóknunum í grein tímaritsins Nature, Strong constraints on aerosol-cloud interactions from volcanic eruptions. Sem fyrr segir er Þorvaldur Þórðarson, prófessor við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands, einn forvígismanna. Hann segir niðurstöðurnar afar þýðingamiklar.

„Þetta gos markar tímamót fyrir rannsóknir á áhrifum eldgosamengunar á neðra veðrahvolfið, sem eru lægstu 5 km andrúmsloftsins, bæði hvað varðar magn og útbreiðslu móðunnar. Það færir okkur líka í hendur leiðir til þess að meta með nákvæmari hætti hvaða áhrif brennisteinsmengun af mannavöldum hefur á andrúmsloftið,“ segir Þorvaldur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert