Snærós Sindradóttir ráðin til RÚV

Snærós Sindradóttir.
Snærós Sindradóttir.

Snærós Sindradóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra UNG-RÚV. Hún hefur starfað sem blaðamaður hjá Fréttablaðinu undanfarin ár. Snærós hefur störf hjá RÚV í byrjun ágúst og mun leiða uppbyggingu á þjónustu RÚV fyrir ungt fólk þvert á miðla. Þetta kemur fram í frétt RÚV.

Snærós er 25 ára, en hún hlaut blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands fyrir viðtal ársins 2016. Þar áður starfaði hún með ungu fólki hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar.

Í frétt RÚV segir að hún komi inn með skýra sýn um nýjar leiðir í miðlun almannaþjónustu til ungs fólks og þekki vel þær áskoranir sem hefðbundnir fjölmiðlar standa frammi fyrir í dag. Meðal aðaláherslna í nýrri stefnu RÚV til 2021 kemur fram að RÚV ætli að bæta þjónustu við fólk á aldrinum 15-29 ára.

„Snærós mun hafa það verkefni að opna og leiða samtalið við ungt fólk, rýna í þarfir hópsins og koma með tillögur að úrbótum á þjónustu RÚV við hópinn. Hún mun þróa tillögur að nýrri þjónustu og miðlun til að sinna þörfum þeirra. Hún mun rýna núverandi dagskrárframboð RÚV og vera í samstarfi við dagskrárstjóra um dagskrárákvarðanir miðlanna. Snærós mun starfa náið með faghópi um þjónustu RÚV við ungt fólk sem verður myndaður með haustinu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert