Steypuvinna hafin á Hörpureitnum

Ljósmynd/BM Vallá

Framkvæmdir á Hörpureitnum í miðborg Reykjavíkur þar sem Marriott hótel rís hófust klukkan 4 í nótt. Byrjað var að steypa grunn í holuna sem staðið hefur óhreyfð í fjölda ára en um þrjátíu starfsmenn unnu við verkefnið í nótt með bílum, tækjum og tólum.

„Það er mjög jákvætt að vinna sé loksins hafin á svæðinu því holan var grafin þarna fyrir hrun og hefur staðið óhreyfð síðan. Þessi hola hefur verið mikið lýti á miðborg Reykjavíkur og því kærkomið að fylla upp í hana. Steypumagnið sem við afhentum í nótt var á við 5-7 einbýlishús,“ er haft eftir Gunnari Þór Ólafssyni, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs BM Vallár, í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Aðalverktaki framkvæmdanna er Ístak ehf. en um er að ræða 250 herbergja, fimm stjörnu Marriott hótel, sem verður fyrsta fimm stjörnu hót­el borg­ar­inn­ar. Á hót­el­inu verða auk þess veislu- og fund­ar­sal­ir, fjöldi veit­ingastaða og heilsu­lind­ir en fram­kvæmd­ir hóf­ust á síðasta ári. Þegar teikningarnar voru kynntar var gert er ráð fyrir að hótelið tæki til starfa árið 2019.

„Marriott hótelið á að byggjast upp á miklum hraða. Verktíminn er skammur þannig að það verður mikið um að vera í byggingu og uppsteypu þessa verkefnis í sumar og haust,“ er enn fremur haft eftir Gunnari.  

Gert er ráð fyrir að hótelið taki til starfa árið …
Gert er ráð fyrir að hótelið taki til starfa árið 2019.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert