Datt úr stiga við að hreinsa þakrennu

Maðurinn var færður á slysadeild.
Maðurinn var færður á slysadeild. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var klukkan 09:52 í morgun tilkynnt um mann sem datt úr stiga við Álfhólsveg í Kópavogi er hann var að hreinsa rennu við þak á húsi.

Hann kvartaði undan verk í baki og var sjúkrabíll slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu sendur á staðinn. Maðurinn var færður á slysadeild til aðhlynningar að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert