Lögreglan varar enn við tunguliprum sölumönnum

Ljósmynd/Kristinn Magnússon

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar varnaðarorð sín til þeirra sem íhuga að eiga viðskipti við vingjarnlega, erlenda sölumenn sem bjóða vandaðan fatnað til sölu á mjög hagstæðu verði.

Lögreglan tilkynnti frá tunguliprum sölumönnum fyrir þremur vikum og líklegt þykir að um sömu menn sé að ræða. Grunur leikur á að varningurinn sé ekki í þeim gæðaflokki sem fullyrt er. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Samkvæmt lögreglu leitaði maður til hennar fyrr í dag og sagði farir sínar ekki sléttar eftir viðskipti við tvo erlenda menn. Mennirnir seldu honum nokkra jakka eftir að hafa tekið hann fyrst tali á bifreiðastæði við banka í austurhluta Reykjavíkur. Lögreglu grunar að flíkurnar, sem maðurinn keypti, séu ekki í þeim gæðaflokki sem um var talað.

Sölumennirnir eru sjálfir jakkafataklæddir, koma vel fyrir og virðast eiga auðvelt með að blekkja fólk. Að sögn lögreglu er málið frá því fyrr í dag ekki það eina sem hefur ratað á borð lögreglu. Ef fólk sér til umræddra sölumanna, sem sagðir eru vera á ljósgrárri bifreið, er það beðið um láta lögreglu vita.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert