Tveggja bíla árekstur varð á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar. Þrír voru fluttir með sjúkrabíl vegna minni háttar meiðsla eftir áreksturinn samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Atvikið var ekki alvarlegt en smá leki varð úr bílunum við áreksturinn og er slökkviliðið búið að hreinsa götuna. Engin alvarleg slys urðu á fólki og umferð gengur nú sinn vanagang.