Umferðarslys varð á Biskupstungnabrautinni, við gatnamót Grafningsvegar vestan við brúna yfir Sogið hjá Þrastarlundi, um þrjúleytið í dag. Að sögn lögreglunnar á Selfossi lentu þrír bílar þar í umferðaróhappi og urðu verulegar skemmdir á tveimur þeirra.
Einhver meiðsl urðu á fólki, en ekki liggur fyrir hversu alvarleg þau eru eða heldur hver tildrög slyssins voru.
Lögregla lokaði veginum við Þrastarlund um tíma og mynduðust langar bílaraðir beggja vegna. Fljótlega var þó opnað aftur fyrir umferð að hluta og er nú vinnu á slysstað lokið og búið að opna á umferð til beggja átta.