Brotist inn í heilsugæslu

Brotist var inn í heilsugæslu í Austurbænum í nótt.
Brotist var inn í heilsugæslu í Austurbænum í nótt. mbl.is/Eggert

Brotist var inn í heilsugæslu í Austurbænum í nótt en ekki er vitað hvað var tekið. Lögreglunni barst tilkynning um innbrotið rétt fyrir miðnætti í gær og tveimur klukkutímum síðar eða kl. 02:16 var karlmaður sem grunaður er um innbrotið handtekinn.

Hann var vistaður í fangageymslu lögreglu vegna málsins og verður hann yfirheyrður síðar í dag. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. 

Klukkan tæplega fjögur í nótt barst lögreglunni tilkynning um mann sem var að eyðileggja vinnuvélar og það var einnig í Austurbænum. Karlmaðurinn var handtekinn og hann vistaður í fangageymslu vegna frekari rannsóknar og skýrslutöku. Þetta kemur einnig fram í dagbók lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert