Rákust saman á reiðhjólum

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Tvær konur hlutu minniháttar meiðsl þegar þær rákust saman á reiðhjólum við bæjarmörk Akureyrar. Þær voru keppendur í Fernra ganga mótinu sem er hluti af Hjólreiðahelgi Greifans sem fram fer fyrir norðan um helgina.

Að sögn lögreglunnar á Akureyri voru þær fluttar með sjúkrabíl á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar.

Einn var tekinn fyrir ölvunarakstur við reglubundið eftirlit.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert