Fyrsta ferðin til Akraness

Franska skemmtiferðaskipið Le Boreal.
Franska skemmtiferðaskipið Le Boreal.

Á morgun klukkan átta er áætlað að franska skemmtiferðaskipið Le Boreal leggist að aðalhafnargarðinum á Akranesi.

Þetta eru mikil tíðindi fyrir bæjarfélagið og Faxaflóahafnir því Le Boreal er fyrsta skemmtiferðaskipið sem kemur til Akraness.

Le Boreal var smíðað árið 2010 og er 10.944 brúttótonn. Skipið er 142 metrar að lengd og getur tekið 264 farþega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert