Þrjú stór skip í höfn á Ísafirði

Skemmtiferðaskipá Ísafirði.
Skemmtiferðaskipá Ísafirði. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Þrjú skemmtiferðaskip liggja nú á Ísafirði, en um næstu helgi er búist við fjórum skipum þangað með alls 4.300 farþega um borð.

„Það hefur verið 15-20 prósenta aukning á hverju ári,“ segir Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, í Morgunblaðinnu í dag. „Í fyrra komu 80 þúsund farþegar til bæjarins með skemmtiferðaskipum og í ár er áætlað að fjöldinn verði um 100 þúsund,“ bætir hann við.

Gísli segir ferðamenn setja skemmtilegan svip á bæinn og ferðaþjónustuaðilar á svæðinu hafi unnið þrekvirki við að sinna öllum þessum fjölda. „Þessum fjölda fylgir einnig álag á innviði bæjarins, en hér búa um 2.800 manns. Íbúafjöldinn margfaldast svo um verslunarmannahelgina þegar hingað kemur fjöldi fólks í Mýrarboltann auk 4.300 farþega á skemmtiferðaskipum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert