Myndirnar átti aldrei að nota til að selja kjóla

Björt Ólafs­dótt­ir um­hverf­is­ráðherra hefur þegar beðist afsökunar á því dómgreindarleysi …
Björt Ólafs­dótt­ir um­hverf­is­ráðherra hefur þegar beðist afsökunar á því dómgreindarleysi að myndatakan færi fram í þingsal. mbl.is/ Hanna Andrésdóttir

Hugmyndin með því að taka myndir af Björt Ólafsdóttur í kjól frá tískufyrirtækinu GalvanLondon í sal Alþingis var „aldrei sú að nota þær til að selja kjóla úti í hinum stóra heimi“, segir í áréttingu, sem Morgunblaðinu hefur borist frá Sólveigu Káradóttur, stofnanda GalvanLondon. „Hugmyndin var sú að nota GalvanLondon til þess að þjóna íslenskum konum, ekki íslenska konu til þess að  þjóna GalvanLondon.“

Áréttingin hljóðar svo í heild sinni:

„Til áréttingar:

Fyrir nokkrum árum stofnaði ég ásamt vinkonum mínum tveimur tískufyrirtæki sem heitir GalvanLondon sem hannar og býr til fínan klæðnað á konur. Vörur frá fyrirtækinu eru nú í um það bil 70 þekktustu tískuvöruverslunum heims og myndir af frægum konum beggja vegna Atlantshafsins klæddar í fötin okkar birtast reglulega í heimspressunni. Þegar við Björt Ólafsdóttir vinkona mín og ráðherra létum taka af henni myndir í einum af kjólunum okkar í salarkynnum Alþingis var hugmyndin aldrei sú að nota þær til þess að selja kjóla út í hinum stóra heimi vegna þess að þrátt fyrir ótrúlega mikla verðleika hefur hún líklega ekki það til að bera sem selur kjóla utan Íslands sem er ekki á markaðssvæði GalvanLondon.

Hugmyndin var að sýna heiminum íslenska konu sem sameinar það að vera ung og falleg og glæsileg og sterk og gáfuð og kjarkmikil, sýna heiminum konu sem hefur sýnt langt nef þeim karlrembukúltúr sem ríður röftum í íslenskum stjórnmálum. Hugmyndin var sú að nota GalvanLondon til þess að þjóna íslenskum konum, ekki íslenska konu til þess að  þjóna GalvanLondon, með því að sýna heiminum hvernig íslenskar konur geta risið til valda í okkar kyrkingslegu stjórnmálum þrátt fyrir æsku og fegurð.

Sólveig Káradóttir“

Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra í kjól Galvan í þingsal.
Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra í kjól Galvan í þingsal. Ljósmynd/Instagram-síða Galvan London
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert