A4 með lægsta verðið

Lægsta verðið var oftast hjá A4 Skeifunni eða á 17 …
Lægsta verðið var oftast hjá A4 Skeifunni eða á 17 titlum af 26. mbl.is/Eggert Jóhannesson

A4 Skeifunni var oftast með lægsta verðið og Penninn-Eymundsson oftast með hæsta verðið þegar Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á 26 algengum notuðum námsbókum fyrir framhaldsskóla.

Könnunin var gerð fimmtudaginn 10. ágúst. Misjafnt var hversu margir þeirra titla sem skoðaðir voru fengust í verslununum. Í A4 Skeifunni fengust allir 26 titlarnir, 25 fengust hjá Heimkaup.is en Penninn-Eymundsson átti fæsta eða 16, segir í tilkynningu frá ASÍ.

Lægsta verðið var oftast hjá A4 Skeifunni eða á 17 titlum af 26, þar á eftir kom Heimkaup.is með lægsta verðið á 9 titlum. Penninn-Eymundsson Kringlunni var oftast með hæsta verðið í könnuninni eða á 14 titlum af 26.

Mesti verðmunurinn í könnuninni var á bókinni „Íslenska eitt“, sem var dýrust hjá Pennanum-Eymundsson Kringlunni 4.078 kr en ódýrust 2.599 kr hjá A4, það gerir 1.479 kr verðmun eða 57%. Einnig munaði miklu á verði á „Þýska fyrir þig 1“, lesbók, sem var á 2.878 kr hjá Pennanum-Eymundsson en 1.899 kr. hjá A4, sem er 979 kr verðmunur eða 52%.

Þegar útsöluverð á nýjum og notuðum bókum er borið saman kemur í ljós að það er mun hagstæðara að kaupa notaða bók en nýja. Verðmunurinn í verslununum er misjafn en mestur verðmunur var hjá A4 á „Almenn jarðfræði“ sem kostar þar ný 8.289 kr. en notuð 3.199 kr sem er 159% munur. Minnstur verðmunur á notaðri og nýrri bók var hjá Pennanum-Eymundsson á „Saga listarinnar“ sem kostar þar ný 5.499 kr. en notuð 4.199 kr. sem er 31% verðmunur.

Könnunin í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert