Yfir 100 tónlistarviðburðir um alla borg

Flugeldasýningin verður á sínum stað.
Flugeldasýningin verður á sínum stað. mbl.is/Freyja Gylfa

Í ár verður Menningarnótt ein allsherjar tónlistar-  og menningarveisla en í miðborginni verður boðið uppá þrenna stórtónleika; Tónleika Rásar 2 á Arnarhóli, Garðpartí Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum og hip-hop tónleika á Ingólfstorgi. Þá eru yfir hundrað tónlistarviðburðir um alla borg. Frítt er inná öll söfn í miðborginni sem bjóða uppá fjölbreytta dagskrá fram á kvöld. Þá verður Harpa með dagskrá frá kl. 13-18.

Leikarar, dansarar og fjöllistafólk verða með uppákomur og íbúar bjóða víða uppá dagskrá í húsagörðum og sundum. Hlemmur er áherslusvæði Menningarnætur í ár og verður Mathöllin opnuð við það tækifæri og boðið verður uppá fjölda áhugaverðra viðburða á svæðinu.

Akranes er gestabær Reykjavíkur á Menningarnótt og ætlar af því tilefni bjóða uppá dagskrá á veitingastaðnum Messanum við Sjóminjasafnið. Að venju er frítt í Strætó og flugeldasýningin verður á sínum stað á Austurbakka klukkan 23 og verður talið niður í hana á glerhjúp Hörpu. Á Menningarnótt er sérstök áhersla lögð á að fjölskyldan njóti samveru, komi saman í bæinn og fari heim saman.

Hægt er að nálgast alla viðburði á Menningarnótt á vefnum menningarnott.is.

Hér að neðan má sjá kort af hátíðarsvæði Menningarnætur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert