Í fangaklefa vegna líkamsárásar

mbl.is/Kristinn Magnússon

Einn er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar en ekki kemur fram hvar né hvenær árásin var framin. Né heldur hvaða vopn maðurinn var með í fórum sínum.

Tveir voru síðan stöðvaðir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert