Leituðu ferðamanns á Hveravöllum

mbl.is/Eggert

Björgunarsveitir voru kallaðar um klukkan ellefu í gærkvöldi að beiðni lögreglunnar á Blönduósi vegna erlends ferðamanns sem villtist á Hveravöllum.

Var konan á göngu og áttaði sig ekki á hvar hún var þegar tók að dimma og villtist þá í Þjófadölum. Björgunarsveitir fundu konuna skömmu eftir miðnætti og segir í dagbók lögreglu að henni hafi ekki orðið meint af og að hún hafi verið ákaflega þakklát fyrir veitta aðstoð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert