Telja Bjarna og Sigríði þurfa að víkja

Þingflokkur Viðreisnar.
Þingflokkur Viðreisnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ráðgjafaráð Viðreisnar telur einsýnt að núverandi forsætisráðherra og dómsmálaráðherra, Bjarni Benediktsson og Sigríður Andersen, þurfi að víkja sem ráðherrar meðan á rannsókn stendur á vinnubrögðum þeirra í málinu sem orsakaði trúnaðarbrest og leiddi til stjórnarsambandsslita í gærkvöldi.

Í tilkynningu á vefsíðu flokksins kemur fram að í ljósi „þeirrar alvarlegu stöðu og trúnaðarbrests sem kominn er upp sé farsælast fyrir þjóðina að þing sé rofið og gengið sé til kosninga að nýju.“ Þá segir að vinnubrögð ráðherra Sjálfstæðisflokksins í málinu hafi ekki staðist þær kröfur sem Viðreisn geri um vandaða starfshætti og gegnsæi. 

Kallar ráðið eftir því að málið verði rannsakað. „Upplýsa þarf að fullu um þá atburðarás sem leiddi til þess trúnaðarbrests sem orðinn er.“ Þá segir ráðið að meðan á þeirri rannsókn standi sé einsýnt að Bjarni og Sigríður geti ekki setið á ráðherrastóli, auk þess sem Brynjar Níelsson víki sæti meðan á rannsókninni stendur. „Almannahagsmunir verða ávallt að ganga framar sérhagsmunum,“ segir að lokum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert