Tafir urðu á umferð á Suðurlandsvegi á níunda tímanum vegna bifreiðar sem fór út af á mótum Suðurlandsvegar og Bæjarháls.
Að sögn varðstjóra er ekki talið að neinn hafi slasast en flytja þurfti bifreiðina á brott þar sem hún var óökufær. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um óhappið að svo stöddu.