Lögregla lýsir eftir Guðmundi Guðmundssyni

Guðmundur Guðmundsson.
Guðmundur Guðmundsson.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Guðmundi Guðmundssyni, 44 ára, en síðast er vitað um ferðir hans í Breiðholti snemma í morgun.

Guðmundur er grannvaxinn, um 180 sm á hæð, með grá augu og axlarsítt hár, sem hann hefur oftast í tagli. Hann er klæddur í svarta úlpu, svartar vinnubuxur, hvíta og bláa strigaskó og er með svarta derhúfu merkta Olís. Guðmundur, sem notar gleraugu, hefur yfir að ráða bifreiðinni UU-662, sem er rauður Ford Explorer árgerð 2005. 

Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Guðmundar, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðnir um að hafa strax samband við lögreglu í síma 112.

Uppfært: 23:55 Lögregla greindi frá á tíunda tímanum að Guðmundur væri fundinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert