Síldarminjasafnið verðlaunað

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir veitti fulltrúum Síldarminjasafnsins, Anítu Elefsen og …
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir veitti fulltrúum Síldarminjasafnsins, Anítu Elefsen og Örlygi Kristfinnssyni, verðlaunin. Ljósmynd/Aðsend

Síldarminjasafnið á Siglufirði hlýtur Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu árið 2017 fyrir fegrun umhverfis og bætt aðgengi. Verkefnið var lokaáfangi í byggingu bryggjupalla milli safnhúsanna þriggja og uppsetningu lýsingar á svæðinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þar segir að tenging safnhúsanna þriggja hafi skapað nauðsynlega heildarmynd safnsvæðisins og auðveldað öllum gott aðgengi milli húsa. „Frágangur bryggju og ljósastaura endurvekur tíðaranda en hafa verið aðlagaðir nýju hlutverki. Þessar framkvæmdir hafa að mati dómnefndar verið vel unnar, skapað fallega bæjarmynd og náð að fanga þann staðaranda sem byggir á bæjarsögunni,“ sagði Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, er hún tilkynnti um verðlaunin á ferðamálaþingi 2017 í Hörpu í dag og afhenti fulltrúum Síldarminjasafnsins, þeim Anítu Elefsen og Örlygi Kristfinnssyni, verðlaunagripinn Sjónarhól.

„Ásýnd bæja, fagurfræðileg gæði og styrking staðaranda er afar mikilvæg fyrir íbúa, en einnig  mikilvægur hlekkur í þeirri viðleitni að laða ferðamenn á nýja staði utan þeirra leiða sem mest eru ásetnar nú. Styrking ferðaþjónustu í þéttbýliskjörnum við strendur landsins og uppbygging þjónustutækifæra á þeim stöðum er skref í að stuðla að sjálfbærni ferðaþjónustunnar hér á landi,“ sagði Þórdís Kolbrún, að því er kemur fram í tilkynningunni.

Það var mat dómnefndar að Síldarminjasafnið á Siglufirði sé gott dæmi um frumkvöðlavinnu, þar sem menningar- og atvinnusaga bæjarfélags hefur orðið að aðdráttarafli fyrir ferðafólk og verið mikilvægur liður í að endurnýja bæjarbraginn. Umhverfismálin, ásýnd og aðgengi eru afar mikilvægir þættir í þeirri sköpun.

Dómnefndin í ár var skipuð Halldóri Eiríkssyni, arkitekt og formanni stjórnar Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða, Helenu Guttormsdóttur, lektor og námsbrautastjóra umhverfisskipulagsbrautar Landbúnaðarháskóla Íslands, og Ólöfu Ýrr Atladóttur ferðamálastjóra.

Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og var þetta því í 23. sinn sem þau voru afhent.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert