Kynsjúkdómar aukist hér á landi

Skort á notkun smokka kann að vera ein ástæðan fyrir …
Skort á notkun smokka kann að vera ein ástæðan fyrir aukningu kynsjúkdóma hér á landi. Getty images

Tíðni kynsjúkdóma á Íslandi hefur aukist á undanförnum árum og heldur áfram að fara vaxandi. Með vaxandi útbreiðslu kynsjúkdóma hér á landi má búast við að sjá alvarlegar afleiðingar kynsjúkdóma á borð við sárasótt og HIV sem ekki hafa sést hér um árabil.

Ástæður aukningarinnar eru ekki alveg ljósar en Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir vekur athygli á málinu í nýjasta tölublaði læknablaðsins.

Þórólfur segir að vafalaust sé um marga samspilandi þætti að ræða, til að mynda vaxandi kæruleysi í kynlífi, skort á notkun smokka, vaxandi fjölda dvalarleyfisumsækjenda og mikill fjöldi ferðalaga Íslendinga erlendis.

Tilfellum lekanda, sárasóttar og HIV fjölgað

Frá árinu 2004 hefur árlegur fjöldi þeirra sem greinast með lekanda aukist en á árinu 2016 greindust 27 einstaklingar á hverja 100.000 íbúa, alls 89 manns, með sjúkdóminn. Þá hefur árlegur fjöldi nýgreindra einstaklinga með sárasótt aukist umtalsvert frá árinu 2013 og greindust 10 á hverja 100.000 íbúa, alls 33, á árinu 2016. Þessi þróun hefur haldið áfram á þessu ári og stefnir í tvöfalt fleiri nýgreiningar á árinu miðað við árið 2016 að sögn Þórólfs.

Fjöldi nýgreindra með HIV hefur verið um 8-13 á ári en frá árinu 2010 hefur fjöldinn aukist. Árið 2016 greindust 28 manns með HIV og höfðu þá ekki fleiri einstaklingar greinst á einu ári síðan faraldurinn hófst. 

Nýgengi klamydíu með því hæsta hér á landi

Þá greinast um 2000 manns árlega með klamydíu hér á landi en sá fjöldi hefur verið stöðugur á síðustu árum. Nýgengi klamydíu hérlendis með því hæsta sem þekkist í Evrópu

Þessi þróun á útbreiðslu kynsjúkdóma er ekki bundin við Ísland en sama þróun hefur átt sér stað bæði austan hafs og vestan að því er fram kemur í grein Þórólfs í Læknablaðinu.

Hann segir mikilvægt taka höndum saman um að snúa þessari þróun við en fyrr á árinu skipaði heilbrigðisráðherra starfshóp undir forystu sóttvarnalæknis sem fékk það verkefni að koma með tillögur að aðgerðum til að stemma stigu við útbreiðslu kynsjúkdóma. Hópurinn mun skila tillögum sínum á næstunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert