Vill þróa skólakerfi 21. aldarinnar

Ragnar Þór Pétursson, kennari, ætlaði upphaflega ekki að bjóða sig …
Ragnar Þór Pétursson, kennari, ætlaði upphaflega ekki að bjóða sig fram til formanns Kennarasambands Íslands. Ljósmynd/Aðsend

Síðasti sólarhringur er búinn að vera tilfinningarússíbani. Þar sem ég sat á Skólaþingi sveitarfélaga í gær fékk ég þær hörmungarfréttir að kær fjölskyldumeðlimur hefði dáið fyrr um daginn þegar ekið var á hann. [...] Ofan í þessar tilfinningar blandast þakklæti. Ég hlaut kosningu sem næsti formaður KÍ.“

Þetta er meðal þess sem kemur fram í bloggfærslu Ragnars Þórs Péturssonar á Stundinni, en hann var kjörinn formaður Kennarasamabands Íslands fyrr í dag.

Frétt mbl.is: Ragnar kjörinn formaður KÍ

Ragnar er þakklátur öllum þeim sem kusu sig og segist ætla að gera sitt allra besta til að sinna starfinu vel. Ragnar hlaut 3.205 at­kvæði eða 56,3%. Þrjú voru í fram­boði til for­manns KÍ. Á kjör­skrá voru 10.675  og greiddu 5.691 at­kvæði, eða 53,3%.

Ragnar segi að upphaflega hafi hann ekki ætlað að bjóða sig fram til formanns. „Ég er nánast fullkomlega sáttur í starfi sem kennari. Ég er hinsvegar algerlega sannfærður um að hér á landi verði að koma til breytingar á menntamálum með þjóðarsátt um bætt kjör kennara – og að traust ríki í garð þeirra bæði á borði og í orði,“ segir í færslu hans.

Meðal brýnna mála sem ráðast þarf í að mati Ragnars er að þróa skólakerfi 21. aldarinnar. „Þeir sem hljóta að leiða þá þróun eru kennararnir. Þannig er það í öllum löndum sem náð hafa árangri. Þannig mun það líka vera hér.“

„Pólitíkin í landinu verður að breytast“

Ragnar hvetur einnig til aukinna samstöðu meðal félagsmanna KÍ. „Okkar bíða mörg brýn verkefni. Á öllum skólastigum. Verum óhrædd við að taka slaginn – því það skiptir máli að slagurinn sé tekinn. En þjöppum okkur einnig að baki þeim sem eru samherjar okkar í baráttunni fyrir réttlátu og framsæknu skólakerfi í landinu. Í hópi samherja eiga bæði ríki og sveitarfélög heima. Þar þurfa bæði ríki og sveitarfélög að gera betur en hingað til. Svik, rógur og þvinganir eiga hvergi heima í samskiptum. Sérstaklega ekki á milli þeirra aðila sem fara með sum af mikilvægustu hagsmunum þjóðarinnar. Pólitíkin í landinu verður að breytast. Fólk er ekki bara orðið þreytt á henni – hún hefur eyðilagt alltof margt.“

Átta félög eiga aðild að Kennarasambandi Íslands og eru félagsmenn um tíuþúsund talsins. Kjaraviðræður eru meðal stórra verkefna sem fram undan eru, en í tilfelli grunnskólakennara renna núgildandi kjarasamningar út í lok mánaðarins.

Ragn­ar mun þó ekki taka við formennsku fyrr en í vor þegar Þórður Árni Hjaltested mun láta af störfum formanns á VII þingi Kenn­ara­sam­bands­ins sem fram fer í apríl á næsta ári.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert