Fólk í atvinnuleit fær desemberuppbót

Desemberuppbót verður greidd atvinnuleitendum eigi síðar en 18. desember.
Desemberuppbót verður greidd atvinnuleitendum eigi síðar en 18. desember. mbl.is/Ómar

Óskert desemberuppbót atvinnuleitenda verður 65.162 krónur. Áætlað er að á bilinu 3.900-4.200 einstaklingar eigi rétt á desemberuppbót frá atvinnuleysistryggingasjóði í ár. Þetta kemur fram í reglugerð frá félags- og jafnréttismálaráðherra um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins.

Í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu kemur fram að óskert desemberuppbót er 65.162 kr. Þá fá atvinnuleitendur með börn á framfæri jafnframt sérstaka uppbót sem nemur 4% af óskertri desemberuppbót, eða rúmum 2.600 kr. fyrir hvert barn yngra en 18 ára.

„Rétt á fullri desemberuppbót eiga þeir atvinnuleitendur sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins, hafa verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2017 og hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember,“ segir í tilkynningunni.  

Greiðsla til þeirra sem eiga ekki fullan bótarétt reiknast í hlutfalli við rétt þeirra til atvinnuleysisbóta á árinu og fjölda mánaða sem viðkomandi hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur. „Uppbótin verður þó aldrei lægri en sem nemur 16.291 kr.,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Gert er ráð fyrir að desemberuppbót verði greidd rétthöfum eigi síðar en 18. desember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert