Níræð kona sem fótbrotnaði aðfaranótt föstudags hefur legið inni á bráðadeild Landspítalans síðan þá með ómeðhöndlað fótbrot. Konan var sett í gifs frá nára og niður úr til að draga úr kvölum meðan hún bíður aðgerðar.
Að sögn Svövu Loftsdóttur, dóttur konunnar, var vonast til þess að hún kæmist í aðgerð í dag, mánudag.
„Það væri þremur og hálfum sólarhring eftir slysið, í fyrsta lagi. Það er auðvitað ekki boðlegt,“ segir Svava í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.