Áhyggjur af flutningum meðan Baldur er úr leik

Bilunin í Baldri kemur sér illa fyrir marga.
Bilunin í Baldri kemur sér illa fyrir marga. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

„Þrátt fyrir ófærð síðustu daga hafa flutningar gengið vel til þessa og ekki er hægt annað en að hrósa Vegagerðinni fyrir frammistöðuna,“ segir Víkingur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Arnarlax á Bíldudal.

„Að þessu sögðu er því þó ekki að neita að við höfum verulegar áhyggjur af stöðunni og það er vægast sagt bagalegt að Baldur skuli vera úr leik í allmargar vikur.“

Daglega allan ársins hring er slátrað og pakkað 55-65 tonnum af laxi hjá Arnarlaxi og er nú slátrað úr kvíum í Tálknafirði. Fyrsti flutningabíll leggur af stað frá Bíldudal um klukkan 10 fyrir hádegi og síðan koll af kolli allan daginn. Fjórir bílar fara daglega með lax suður, að því er fram kemur í umfjöllun um afleiðingar bilunar Baldurs í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert