Vilja rafræna fylgiseðla lyfja

Rafrænir lyfseðlar gætu gert okkur kleift að taka þátt í …
Rafrænir lyfseðlar gætu gert okkur kleift að taka þátt í sameiginlegum lyfjakaupum. mbl.is/Ómar Óskarsson

Lyfjastofnun Evrópu er með til skoðunar hvernig nota megi rafrænar leiðir til að miðla upplýsingum um lyf til sjúklinga á öruggan hátt. Á norrænum vettvangi er rætt um að Norðurlandaþjóðirnar sækist sameiginlega eftir því að fá reglum Evrópusambandsins breytt þannig að heimilt verði að selja lyf með rafrænum fylgiseðlum. Frá þessu er greint á vefsíðu Lyfjastofnunar. 

Á næsta ári mun Lyfjastofnun Evrópu og Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins efna til vinnustofu þar sem fjallað verður um hvernig megi nýta betur rafrænar leiðir til að miðla upplýsingum um lyf til notenda.  

Velferðarráðuneytið og Landamærahindrunarráð Norrænu ráðherranefndarinnar vinna að þessum málum. Samkvæmt gildandi reglum Evrópusambandsins skulu lyfjapakkningar innihalda fylgiseðil með viðkomandi lyfi á tungumáli þess lands þar sem lyfið er selt. Þetta felur þetta í sér ýmsa annmarka, einkum meðal fámennra þjóða með eigið tungumál, og því er þrýst á að breyta reglunum þannig að ríkjum verði heimilt að nota rafræna fylgiseðla. Kostirnir eru meðal annars þeir að auðveldara væri fyrir Íslendinga að taka þátt í sameiginlegum lyfjainnkaupum með öðrum þjóðum og ná með því niður kostnaði og sóun lyfja myndi minnka. Þetta kemur fram á vef velferðarráðuneytisins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert