Mikill verðmunur á jólamatnum

Það borgar sig að skoða verðið áður en jólamaturinn er …
Það borgar sig að skoða verðið áður en jólamaturinn er keyptur.

Bónus er í langflestum tilvikum með lægsta verðið þegar kemur í verðlagningu á jólamat þetta árið samkvæmt verðkönnun ASÍ. Hagkaup, sem er líkt og Bónus í eigu Haga, er oftast með hæsta verðið á jólamatnum. 

Í könnuninni sem var gerð 13. desember kemur fram að Bónus er í 54% tilfella með lægsta verðið en næst á eftir kemur Krónan sem er með lægsta verðið í 15% tilfella. Hagkaup er oftast með hæsta verðið eða í 36% tilfella en þar á eftir kemur Iceland með hæsta verðið í 29% tilfella. 

Kíló af hindberjum kostar 5.327 kr. hjá Hagkaup en 2.144 …
Kíló af hindberjum kostar 5.327 kr. hjá Hagkaup en 2.144 kr. í Costco.

Hindberin 94% ódýrari í Costco en Hagkaup

Grænmeti og ávextir er sá vöruflokkur sem er með mesta verðmuninn en meðalverðmunurinn milli búða er 52%. Þar er verðmunur á hindberjum mestur eða 94% en hæsta kílóverðið var 5.327 kr. hjá Hagkaup en lægsta hjá Costco eða 2.144 kr.

Mikill verðmunur er á rauðrófum milli búða en rauðrófurnar eru ódýrastar hjá Bónus á 89 kr. kílóið en dýrastar hjá Víði á 148 kr. kílóið. Svipað er uppi á teningnum með rauðkálshausa en þar er verðmunurinn ívið meiri eða 59% en ódýrast er að kaupa rauðkálshausa í Hagkaup (199 kr. kílóið) en dýrast er það hjá Fjarðarkaupum og Víði (398 kr. kílóið).  

Mikill verðmunur á kjöti

Af kjötvörum var mesti verðmunurinn á hálfum Íslands lambahrygg með beini en hann er 40% ódýrari í Víði en í Hagkaup eða á 1.885 kr. hjá Víði en 2.799 kr. hjá Hagkaup. Þá var einnig mikill verðmunur á SS birkireyktu hangikjöti (úrbeinuðu) eða 39%. Bónus var með lægsta verðið eða 3.398 kr. kg en Kjörbúðin var með hæsta verðið eða 4.998 kr. kg.

Töluverður munur er á konfekti og sælgæti milli búða en 1 kg kassi af Lindu konfekti er 41% ódýrari hjá Bónus en hann er hjá Iceland eða á 1.898 kr. í stað 2.999 kr. Einnig er mikill munur Machintosh Quality Street-dósum, 1,2 kg og 2 kg eða 33% en í báðum tilfellum er Bónus með lægsta verðið en Hagkaup hæsta.

Verðlagning á brauði, kexi og morgunkorni er einnig æði misjöfn eftir búðum en sem dæmi má nefna að 69% verðmunur er á Heimilisbrauði en ódýrast er það hjá Bónus á 279 kr. en dýrast hjá Víði á 548 kr. 40% munur er á súkkulaðibitakökum frá Kexsmiðjunni en þar er Bónus með lægsta verðið eða 598 kr. á meðan kökurnar kosta 918 kr. hjá Fjarðarkaupum. Hagkaup er með hæsta verðið á öðrum smákökum frá Kexsmiðjunni en þar munar 38% og 39%. Pilsnerunnendur geta glaðst yfir verðlaginu í Bónus en þar fæst ½ l dós á 85 kr. en í Iceland er Pilsnerdósin 79% dýrari og kostar 179 kr. Hins vegar var 2l appelsín ódýrast hjá Iceland á 229 kr. en 42% dýrara í Víði á 348 kr.

Besta vöruúrvaldið hjá Fjarðarkaupum en verst hjá Costco

Fjarðarkaup trónir á toppnum með mesta vöruúrvalið en þar mátti finna 89 af 90 vörum sem skoðaðar voru en Hagkaup fylgir fast á eftir með 87 vörur af 90. Costco var með minnsta úrvalið eða einungis 7 vörur en næstminnsta úrvalið mátti finna hjá Víði eða 50 vörur af 90.

„Taka skal fram að vörurnar sem könnunin nær til eru oftar en ekki íslenskar og markaðssettar sérstaklega fyrir jólin hér á landi og er úrvalið í sumum búðum til marks um það.

Í könnuninni var hilluverð á 90 vörum skráð niður en það er það verð sem neytandinn hefur þegar hann ákveður hvort hann ætli að kaupa viðkomandi vöru. Ef afsláttur er tekinn fram á hillu er hann tekinn til greina.

Könnunin var framkvæmd á sama tíma í öllum verslunum en þær eru Bónus Holtagörðum, Nettó Granda, Krónan Hafnarfirði, Hagkaup Garðabæ, Iceland Vesturbergi, Fjarðarkaup, Víðir Garðabæ, Costco og Kjörbúðin Neskaupstað. Í könnuninni er einungis gerður samanburður á verði en ekkert mat er lagt á gæði eða þjónustu viðkomandi verslana,“ segir í fréttatilkynningu en hægt er að skoða verðkönnunina hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert